Fyrirspurnir um ný viðskipti
Guðmundur Pálsson
gudmundur@pipar-tbwa.is
Við vinnum með hugmyndir alla daga og látum þær verða að veruleika. Vörumerki eru óaðskiljanlegur hluti af menningu okkar en lætin þarna úti eru mikil og ótal margt sem lokkar athygli neytenda. Til að vörumerki skíni og nái í gegn skipta hugmyndaauðgi og fagleg vinnubrögð öllu máli, því við viljum ná árangri fyrir viðskiptavini okkar.
Til þess þurfum við að hugsa öðruvísi. Finna annars konar lausnir. Það er kjarninn í hugmyndafræðinni okkar, Disruption® , sem gerir okkur kleift að móta vel skilgreinda sýn og skýr markmið í náinni samvinnu við viðskiptavininn.
Við erum hluti af TBWA-auglýsingakeðjunni sem telur yfir 300 stofur víðsvegar um heiminn. Þar með getum við skoðað árangur ótal herferða annarra TBWA-stofa til að læra af þeim og deila með viðskiptavinum okkar dýrmætri reynslu af markaðsstarfi erlendis.
Á Pipar\TBWA leggjum við mikið upp úr bæði heilbrigðri vinnustaðamenningu og samfélagslegri ábyrgð. Markvisst er passað upp á kynjahlutföll og við vorum fyrsta auglýsingastofan á landinu til að fá jafnlaunavottun frá VR, árið 2016.
Við reynum að búa vel að starfsfólki, andlega og líkamlega, svo því líði vel í vinnunni.
Við hugsum um umhverfið, bönnum pappaílát og flokkum allt rusl.
Við höfum auk þess unnið að aragrúa auglýsingaherferða sem snúa að almannaheill, bæði vitundarvakningum og herferðum til styrktar góðum málefnum. Má þar nefna Á allra vörum, Stígamót, Hjartaheill, Bláan apríl, Unicef, UN Women, Hjálparstarf kirkjunnar, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Olísverkefnið Gefum og gleðjum, Jólapeysuna, Virk og margt fleira.
Við fengum viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki hjá VR 2017.
Við vorum í sömu könnun valin Fyrirtæki ársins hjá VR 2018.